Dverghamar 10, 900 Vestmannaeyjar
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á pöllum
4 herb.
157 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1975
Brunabótamat
88.400.000
Fasteignamat
68.300.000

Dverghamar 10, Vestmannaeyjum
 
Einbýlishús á einni hæð (tveimur pöllum) 128,3 fm og bílskúr 28,9 fm, samtals 157,2 fm. Húsið er steypt og byggt árið 1975 og skiptist svo:

Aðalinngangur að vestanverðu
Anddyri með flísum á gólfi
Hol með parketi, opið inní stofu og að tröppum í herbergisálmu, innangengt í bílskúr
Herbergi (1) parket/tarketi á gólfi, skápur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og flísaplötum á veggjum, baðkar og sturta, innrétting, handklæðaofn.
Herbergi (2) parket/tarket á gólfi, góðir skápar
Herbergi (3) parketi/tarketi á gólfi
Eldhús  með parketi á gólfi, hvítri innréttingu, eldavél/spanhelluborð, búr innaf eldhúsi og þar er tengi fyrir þvottavél
Gengið niður tröppur
Stofa/sjónvarpshol, parket á gólfi.  Útgangur úr stofu út á góðan c.a. 30 fm pall í vestur

Bílskúr (28,9 fm) þar er rafmagn og vatn, sjálfvirkur bílskúrshurðaropnari.  Hellulagt plan framan við bílskúr.  Geymslurými í austurenda bílskúrs og þar er útgangur út á baklóð og þar er lítil útigeymsla.  Rafmagnstafla og hitakútur í bílskúr.
 
Húsið er í ágætu ástandi að utan, járn á þaki að sjá í lagi og nýlega flasningar.  Góður afgirtur garður og pallur framan við húsið. 

Óskað er eftir tilboðum í eignina, nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, [email protected], gsm 8931068
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.