Herjólfsgata 2, Vestmannaeyjum Einbýlishús í miðbæ Vestmannaeyja. Eignin er skráð skv. fasteignaskrá 178,9 á þremur hæðum. Íbúðarhúsnæðið er byggt árið 1910 og bílskúrinn árið 1940.
Eignin skiptist svo:
hæð (63,2 fm)Inngangur að norðvestanverðu
Anddyri/hol rúmgott með flísum, steyptur stigi uppí ris, nýr horngluggi í NA til
Stofa/borðstofa með flísum
Eldhús með flísum á gólfi, eldri innrétting, gólfhiti er í eldhúsi og holi.
Ris (63,2 fm)Svalir í NV
Herbergi (1) með parketi á gólfi, var áður tvö herbergi
Herbergi (2) með parketi á gólfi
Baðherbergi baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél
Kjallari (skv. fasteignaskrá 22,1)Þar er verkstæði, geymsla og lagnarými, inntak fyrir heitt og kalt vatn og rafmagn, hitakútur og rafmagnstafla, ekki full lofthæð.
Bílskúr er skráður 30,4 fm, hann er steyptur, steypt gólf (gólf er ekki slétt), geymsla eða búr er við bílskúr og geymsluloft, bílskúr býður uppá möguleika m.a. á að gera studioíbúð.
Um er að ræða eitt elsta steinhús Vestmanneyja, timburgólf er á milli hæða en húsið steypt. Nýlegt ál er á hluta af þaki, gluggar eru í ágætu ástandi, eignin þarfnast múrviðgerða að utan. Stór afgirt gróin lóð sem býður uppá möguleika, lóðarstærð er 379,6 fm, góð staðsetning við miðbæ Vestmannaeyja skammt frá aðkomu Herjólfs. Kvöð er á lóð Strandvegar 63 um nýtingu bílastæðis fyrir Herjólfsgötu 2.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, [email protected], gsm 8931068