Ásavegur 1, 900 Vestmannaeyjar
59.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
145 m2
59.800.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
76.350.000
Fasteignamat
57.550.000

 
Ásavegur 1, Vestmannaejyjum.
 
Einbýlishús á tveimur hæðum. 
Eignin er skráð hjá fasteignamati svo: Íbúð 145,4 en þar af er bílskúr 39,1 fm, íbúð er því 106,3 fm, svo er geymsla óskráð c.a. 8 fm.    Hús er skráð steypt og  byggt árið 1968.

Eignin skiptist þannig:
Jarðhæð (skv. fasteignaskrá 37 fm)
Anddyri/forstofa með flísum, inngangur að norðvestanverðu
Hol með parketi, uppgangur á efri hæð
Herbergi (1) lítið með parketi á gólfi, þar er rafmagnstafla
Baðherbergi með flísum í hólf og golf, baðkar með sturtu, lítil innrétting
 
Bílskúr (innangengur úr húsi, skv. fasteignaskrá 39,1 fm)
Gengið úr holi í bílskúr og þar eru hugmyndir um að gera nýtt herbergi innst í bílskúr, rafmagn er í bílskúr og kaldavatnsinntak
Geymsla/verkstæði hefur verið gerð að norðan, er ekki í uppgefnum fermetrum eignar, í þessu rými er hitakútur en rafmagnskynding er í húsinu, innangengt úr bílskúr, heitt og kalt vatn er lagt í þessa geymslu.  Úr þessari geymslu er útgangur út á lítinn timburpall í norðvestur.
 
Efri hæð (skv. fasteignaskrá 69,3 fm)
Eldhús vestast á efri hæð, nýleg innrétting og tæki parketi á gólfi
Stofa/borðstofa með parketi, góð lofthæð
Herbergi (2) parket á gólfi, skápar, innaf stofu
 
Efri hæð hefur verið endurnýjuð m.a. nýtt eldhús, járn á þaki hefur verið endurnýjað að mestu.  Búið er að sprunguviðgera eign og mála.  Til er gluggi í stofu (í suðaustur) og mun núverandi eigandi klára að skipta um hann . 
 
Eignin stendur á góðum stað nálægt miðbænum, góð baklóð en lóðarstærð er 269 fm.  Malbikuð bílastæði austan við húsið.

Bílskúr er innangengur og bíður uppá möguleika á stækkun og fjölgun herbergja, núverandi eigandi á hugmyndir í þeim efnum sem hægt er að sýna áhugasömum aðilum.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, [email protected], gsm 8931068

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.