Vesturvegur 6, íbúð á 2. hæð í austurÍbúð í nýbyggingu við vesturveg 6, íbúðin er á annarri hæð til austurs. Íbúðin skiptist svo:
Gengið upp steyptar tröppur að austanverðu, sérinngangur, gott útsýni af palli við íbúð
Anddyri/hol með parketi (möguleiki á rými fyrir fatnað)
Stofa/eldhús, alrými, falleg dökk innrétting, ísskápur og uppvöskunarvél innbyggt og fylgir með í sölu eignar auk hefðbundinna tækja, opnanleg rennihurð í suður.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting, skúffur undir vaski, handklæðaofn, walk in sturta, upphengt wc
Herbergi (1), rúmgott með skápum, parket á gólfum
Sérgeymsla á jarðhæð, norðan við hús og sameiginlegur pallur og sameiginlegt opið geymslurými
Mjög gott útsýni frá íbúðinniLagnarými/tæknirými við íbúð á jarðhæð, sérmælir fyrir rafmagn en hitaveita sameiginleg-stofnað verður húsfélag.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, 8931068, [email protected].Almenn byggingarlýsing eignar er eftirfarandi
íbúðarhúsnæði með fimm íbúðum, stór íbúð á jarðhæð er c.a. 101 fm og íbúðir á annarri hæð eru 60 fm þ.e. íbúð 52,5 fm auk sérgeymslu 7,5 fm, íbúðir á þriðju hæð eru 65 fm þ.e. íbúð 57,5 fm og sérgeymsla 7,5 fm.
Almennar upplýsingar
Um er að ræða nýbyggingu, tveggja hæða timburhús auk niðurgrafinnar jarðhæðar/fyrstu hæðar en eignin er í heild þrjár hæðir, samtals c.a. 360 m² heildarflatarmál. Byggingin er reist á steyptum undirstöðum og kjallara, með timbur-einingum á efri hæðum. Húsið er byggt samkvæmt íslenskum byggingarreglugerðum og viðeigandi stöðlum.
Frágangur eignar
Útveggir og klæðning - Útveggir einangraðir með 195 mm steinull - Klæðning: Loftræst álklæðning á lektum - Allt utanhúss stál er í tæringarflokki C4. Gluggar og hurðir - Ál/tré gluggar og hurðir - Gler í samræmi við Rb blað 31.121.1 um glergerðir
Þak - Kraftsperruþak á timbur burðarvirki - Þakeinangrun: 235 mm þakull með vindpappa - Klæðning: Þakpappi og álklæðning - Fullnægjandi loftun tryggð samkvæmt byggingarreglugerð
Gólf og undirstöður - Steyptar og járnbentar undirstöður - Grunnplata einangruð með u-virði 0,3 W/m²K - Íbúðarhitalagnir: Gólfhiti í öllum rýmum, PEX pípur - Kjallari einangraður með 75 mm plasteinangrun og sökkuldúk
Innveggir - Timburgrind, einangraðir með 95 + 45 mm steinull - Klæddir gifsplötum, sandspartlaðir og málaðir - Allar klæðningar eru í flokki 1 (A-efni)
Lagnakerfi
Frárennsliskerfi - Tvöfalt regnvatns- og skolpkerfi, tengt brunna á lóðarmörkum - Lagnir úr PVC í grunni, PP og hljóðeinangruðu plasti innanhúss
Neysluvatnskerfi - Plastpípur með álkápu (álpex) og ryðfrítt stál með pressufittings - Öryggisbúnaður til að koma í veg fyrir yfirhita á vatni - Hitastýring tryggir 22°C íbúðarhiti við útihita -15°C
Raflagnir - Lagðar í pípur í gólfum og léttum veggjum - Reykskynjarar í öllum svefnrýmum og alrýmum - Handslökkvitæki staðsett í forstofum íbúða
Upplýsingar um innréttingar í hverri íbúð - Kjallaraíbúð: Hvít matt eldhúsinnrétting - Íbúð á 2. hæð (stærri íbúð): Hvít matt eldhúsinnrétting - Íbúð á 3. hæð (minni íbúð): Hvít matt eldhúsinnrétting - Íbúð á 2. hæð (minni íbúð): Dökk grá (RAL7016) eldhúsinnrétting - Íbúð á 3. hæð (stærri íbúð): Dökk grá (RAL7016) eldhúsinnrétting
Nánari upplýsingar um búnað og frágang
Innréttingar og frágangur íbúða: - Blöndunartæki: UMBRELLA blöndunartæki með útdraganlegum stút í eldhúsi (sjá heimasíðu framleiðanda: www.arsan.lt) - Vaskur í eldhúsi: Blanco Subline 500-U hvítur vaskur - Baðherbergi: Steinn á veggjum frá Stone Studio - Allar íbúðir afhentast með myrkragardínum