Vesturvegur 18, Vestmannaeyjum Samkvæmt fasteignaskrá er um er að ræða gisti-veitingahúsnæði á jarðhæð í tvíbýlishúsi, húsið er skv. fasteignaskrá 238,9 fm. Húsið sem hefur gengið undir nafninu “Kúluhúsið” er skv. fasteignaskrá af timbri og klætt með dúk, burðarvirki er að hluta steypt, húsið er byggt árið 1983. Eignin skiptist svo:
Aðalinngangur að austanverðu, góð bílastæði framan við aðalinngang
Stórt rými/veitingasalur þar eru í dag borð fyrir c.a. 30 manns en gæti rúmað fleiri gesti, gott sjónvarp fyrir sportbar og stór og góður bar sem var áður á Súlnasal Hótel Sögu (“Fjólublátt ljós við barinn”)
Salerni fyrir fatlaða
Tvö salerni fyrir aðra gesti
Starfsmannasalerni
Herbergi/Skrifstofa
Þvottaaðstaða
Eldhús er fullbúið og ný loftræsting
Kælir/geymsla
Aðkoma að baka til (vestanverðu)
Gistisalur þar sem eru í dag 18 svefnhylki/capsule og tvö baðherbergi þ.e. salerni, sturta og vaskur. Býður það rými uppá góðar tekjur yfir ferðamannatímann.
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð m.a. settur veggur fyrir gistisalur og bætt þar við tveimur baðherbergjum, nýtt rafmagn/tafla, pípulagnir yfirfarnar, brunavarnir uppfærðar og sett öryggiskerfi og er eignin í dag notuð undir rekstur gistiheimilis/veitingastaðar og uppfyllir öll skilyrði/leyfi til slíks reksturs. Stór og góður bar með þremur vöskum og eldhúsaðstaða, nýleg salerni ofl.
Að utan hefur verið skipt um glugga og sett opnanleg fög í fimm glugga og timbur álklætt að sunnan og austanverðu.
Eignin stendur á áberandi stað í miðbæ Vestmannaeyja og býður uppá mikla möguleika m.a. til veitingareksturs og gistireksturs og/eða skrifstofureksturs eða annars. Lóðarstærð er 399 fm. Góð bílastæði eru framan við eignina