Gerðisbraut 5, VestmannaeyjumEinbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á jarðhæð og
séríbúð þar/útleiguíbúð. Húsið er byggt 1980, jarðhæð steypt og efri hæð af timbri, einangruð að utan og klædd álklæðningu. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin skráð 233 fm þar af er bílskúr skráður 54 fm (hluti hans nýttur undir íbúð á jarðhæð). Eignin skiptist svo:
Neðri hæð (heildarfermetrar 116,5 fm, íbúðarhluti skráður 62,5 fm og bílskúr 54 fm)Inngangur við bílaplan að neðanverðu/vestan,
Geymsla undir tröppum, upphitað rými með garðslöngu og stýringum fyrir heitan pott
Anddyri, inngangur í bílskúr og í íbúð á jarðhæð, þar er tengi fyrir þvottavél og hitagrind
Bílskúr er rúmgóður og snyrtilegur, salerni við bílskúr þar er vatn/vaskur, rafmagn, sjálfvirkur opnari, góð innrétting með austurvegg, 3ja fasa rafmagn.
Íbúð á jarðhæð (c.a. 70 fm, hluti af bílskúr nýttur fyrir íbúð), er í útleigu í dag, lýsing:Alrými, stofa-borðstofa-eldhús, parket á golfi, eldri innrétting
Baðherbergi, flísar á gólfi, sturtuklefi
Tvö góð herbergi (nr. 4 og 5 í húsinu) með parketi á gólfum
Efri hæð (skráð 116,5 fm)Aðalinngangur frá palli að vestan, anddyri með flísum, skápur/fatahengi
Þvottarhús, við anddyri, steypt gólf
Stofa/borðstofa/eldhús-alrými, parket, hvít innrétting frá 2016, útgangur á pall í austur
Góður timburpallur suðaustan við húsið c.a. 40-50 fm, gerður árið 2019,
annar timburpallur í suður, sól stærstan hluta dagsins á þessum pöllum
Herbergisálma í norður:
Herbergi (1) með parketi
Herbergi (2) með parketi, góðir skápar
Baðherbergi, flísar á gólfi, baðkar með sturtu, skúffur og skápur, handklæðaofn
Herbergi (3) með parketi, skápur
Snyrtileg frágengin lóð að mestu, bílastæði að norðvestan, aðgengi um botnlanga frá Nýjabæjarbraut, pláss fyrir þrjá bíla, góður steyptur pallur vestan við húsið, viðardekk,
heitur pottur og
upphitað sturtuhús sem var gert árið 2024, mjög snyrtilegt, hiti í gólfum, sturta, tengi fyrir vatn. Austan og sunnan við húsið eru svo góðir pallar sbr. framangreint.
Efri hæð var einangruð að utan og klædd álklæðningu árið 2017. Plastgluggar í stærstum hluta sem hafa verið endurnýjaðir til ársins 2017, árið 2011 var alozink sett á þak (frágangur undir kassa eftir í vestur og austur) að innan er eign snyrtileg og talsvert endurnýjuð sbr. framangreint.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali,
[email protected], gsm 8931068