Vesturvegur 21, VestmannaeyjumSamkvæmt fasteignaskrá er um að ræða íbúð/einbýlishús, 95 fm á tveimur hæðum, 47,5 fm hvor hæð auk rishæðar, hús byggt 1926. Jarðhæð/1. hæð er steypt en hæð/2. hæð og ris er af timbri (var áður forskalað) en búið er að hreinsa forskalningu af og einangra efri hæð að utan og klæða með lituðu bárujárni.
Eignin skiptist svo:
Jarðhæð:Anddyri/hol með flísum, fírkompa/geymsla við holið
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, tengi fyrir þvottavél, upphengt wc
Eldhús með parketi, gott rými við eldhús, notað í dag sem svefnrými (studio)
Hæð:Sér inngangur að baka til (sunnanverðu), stálstigi
Anddyri með parketi
Uppgangur/stigi uppí ris
Geymsla og lítið þvottarhús, þar er rafmagnstafla
Baðherbergi með flísum á gólfi, wc, sturtuklefi
Stofa/borðstofa með parketi á gólfi
Eldhúskrókur, parket á gólfi
Herbergi (1) með parketi á gólfi
Ris (ekki í uppgefnum fermetrum eignar):Ekki full lofthæð en hægt að nota sem svefnrými eða geymsluloft
Ágæt lóð fylgir eigninni en lóðarstærð er 270 fm. Eignin stendur við miðbæ Vestmannaeyja. Gluggar og gler á efri hæð er í góðu ástandi en á neðri hæð er þörf á skoðun á gluggum og gleri og þörf á að mála stein. Efri hæð er nýlega einangruð og klædd lituðu bárujárni.