Flatir 20Um er að ræða 245,9 fm steinsteypt iðnaðarhúsnæði ´ásamt c.a. 25 fm millilofti. Húsið er upphaflega byggt árið 1986.
Húsið hefur verið notað fyrir atvinnurekstur og hefur í dag verið innréttað sem bílaverskstæði og síðustu ár nýtt sem slíkt.
Húsið skiptist í verkstæðissal ásamt lagerhorni, sér inngangur er inn í rými (með 25 fm millilofti) þar sem eru afgreiðsla, geymsla, salerni og starfsmannaaðstaða og þar á efri hæð er skrifstofuaðstaða/kaffistofa.
Stór hurð er í austurátt (370 cm hæð og 360 cm breidd) og góður salur með gluggum í austur. Eins og að framan segir hefur verkstæðissalurinn verið útbúinn fyrir bifreiðaverkstæði og m.a. settar olígildrur og tengd við niðurföll, útloftunarkerfi, stórt rafmagnsinntak ofl. þrjár bílalyftur eru í húsinu og fimm kefli fyrir olíu sem mögulegt er að kaupa með fasteigninni.
Eignin er byggð þannig að mögulegt er að skipta henni upp í allt að fjögur minni rými.
Gluggar eru að sjá í góðu ástandi, járn á þaki var yfirfarið sumarið 2025 og skipt um kassa.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali á
[email protected] og gsm 8931068.