Birkihlíð 20, efri hæð og ris og skúr á lóð, VestmannaeyjumSamkvæmt fasteignaskrá er um að ræða íbúð á annarri hæð og í risi og bílskúr sunnan við húsið í tveggja íbúða húsi sem er á þremur hæðum, íbúðin er skráð 115,2 fm og bílskúrinn 41 fm, samtals 156,2 fm. Húsið er byggt árið 1955. Eignin skiptist svo:
Inngangur á annarri hæð,
Anddyri, flísar á gólfi
Gangur með flísum á gólfi
Stofa/borðstofa, teppi á gólfum
Eldhús með eldri innréttingu, dúkur á gólfi, búr innaf eldhúsi þar er greinatafla
Geymsla/þvottarhús, lítið rými
Baðherbergi, flísar á gólfi/veggjum, baðkar m/sturtu
Herbergi (1) með dúk á gólfi
Risið
Þrjú herbergi eru í risi,
herbergi númer 2-4. Bílskúr, sunnan við húsið, steyptur og að sjá þarfnast hann endurbóta. Skráð stærð 41 fm.
Íbúðin þarfnast mikilla endurbóta að innan m.a. að hreinsa út öll gólfefni, innréttingar, tæki og hurðar.
Að sjá að utan þarfnast klæðning yfirferðar sem og bílskúr. Gluggar gætu verið að í lagi að hluta en gler þarfnast endurnýjunar. Skipt var um járn á þaki c.a. árið 2005. Íbúð á neðri hæð lenti í bruna fyrir nokkrum árum og hefur verið talsvert mikið endurnýjuð.
Eignin stendur á góðum stað en mikið drasl er á lóð og í bílskúr sem kaupandi þarf að hreinsa en lóðarstærð er 604,1 fm, lóð er í sameign með íbúð efri hæðar.