Strandvegur 26E, VestmannaeyjumUm er að ræða rými á jarðhæð í fjöleignarhúsinu við Strandveg 26. Skv. fasteignaskrá er rýmið skráð 119,2 m2 auk sameignar og byggingarár er 1947 en húsið var endurbyggt að mestu á árunum 2017-2021. Rýmið er hrátt en það er komið vinnuljós og bráðabirgðatafla. Að utan er allt húsið nýlega endurnýjað, einangrað að utan og klætt álklæðningu, gluggar eru nýir og útgangur út á gangstétt í vestur og inn í sameign að austanverðu. Sameign er fullkláruð, snyrtileg og góð bílastæði að austanverðu.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali:
[email protected] og gsm 8931068