Miðstræti 5A - Hóll - Vestmannaeyjum Samkvæmt fasteignamati er húsið 239,4 fm. Kjallari er steyptur og fyrsta og önnur hæð af timbri klætt , húsið var byggt upphaflega árið 1908 en hefur verið endurnýjað að innan á síðustu árum en viðhaldsþörf er komin á húsið að utanverðu. Eignin skiptist svo:
Kjallari (skv. fasteignaskrá78,4 fm):Aðgengi að kjallara er í gegnum suðurhluta fyrstu hæðar. Í kjallara eru
tvö herbergi (1 og 2),
geymsla en þar er hitagrind og rafmagnstafla fyrir allt húsið og
baðherbergi sem var nýlega endurnýjað, flísar í hólf og gólf, walk in sturta, upphengt WC, handklæðaofn og innrétting.
Miðhæð/fyrsta hæð (skv. fasteignaskrá 82,6 fm9Miðhæðin er tvískipt þ.e. inngangur að sunnanverður og þar eru í dag
tvö herbergi (3 og 4), annað með
salerni og hitt með
eldhúskrók. Innganur að norðanverðu, hol,
baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum að hluta, upphengt WC og sturtuklefi og
tvö herbergi (5 og 6). Efsta hæð/önnur hæð (skv. fasteignaskrá 78,4 fm)Þar eru
þrjú svefnherbergi (7, 8 og 9), eitt með vaski, eitt með forstofu og
baðherbergi og eitt með forstofu,
eldhúskrók, stofu og
baðherbergi (lítil íbúð). Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð að innan á undanförnum árum en að utan er þörf á að skipta um klæðningu, múrviðgera og mála jarðhæð og skipta þarf um járn á þaki. Eignin hefur verið í rekstri sem gistihús/herbergjaleiga og er skipulögð þannig þ.e. ekki stofa/eldhús ofl eins og í hefðbundnu íbúðarhúsnæði.
Hægt er að kaupa eignina með öllu innbúi, rúmfötum, handklæðum ofl.Lóð er ófrágengin en skv. upplýsingum eiganda er fyrirhugað að gera veg að vestanverðu á vegum Vestmannaeyjabæjar sem mun þá ganga frá lóðarmörkum þar en lóðarstærð er 566 fm.
Óskað er eftir tilboðum í eignina en nánari upplýsingar gefur Helgi Bragason, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 8931068 eða á [email protected]