Sólhlíð 4, íbúð 202Tveggja herbergja íbúð á annarri hæð í norðurhúsi. Íbúðin er önnur íbúð á efri hæð talið austan frá í húsi því er liggur við götuna/Sólhlíð 4.
Íbúðin mælist 73 fm þar af er geymsla 14,2 fm. Íbúðinni fylgir stæði í bílgeymslu merkt nr. 01 0027, stærð c.a. 20 fm. Þá fylgja íbúðinni svalir með svalalokun, stærð svala er 11,5 fm (ekki í skráðum uppgefnum fermetrum eignar). Heildarstærð íbúðar, geymslu og svala er því 84,5 fm og bílgeymslu c.a. 20 fm, alls um 104,5 fm. Allt auk sameignarrýma.
Íbúðin skiptist svo
Inngangar að norðan og sunnanverðu í gegnum sameignarrými og frá bílgeymslu.
Anddyri, hol með parketi
Herbergi (1) góðir skápar
Hol framan við baðherbergi með skáp
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, walk in sturta og lítil innrétting/skúffur.
Eldhús/stofa með parketi
Útgangur úr stofu/eldhúsi á svalir með svalalokun, gólfhitalagnir er lagðar í svalir en ekki búið að tengja.
Íbúðinni fylgir stæði í bílgeymslu og sérmerkt bílastæði á útibílastæði sem er á milli norður og suðurhúss.
Hér má sjá teikningar af húsinu: https://ibuagatt.vestmannaeyjar.is/meetingsearch/displaydocument.aspx?itemid=5HklH5hjYEmubWKdOEeb9g&meetingid=126375381313903686591&filename=20-871%20S%C3%B3lhl%C3%AD%C3%B0%204-4a%20A%C3%B0alteikning.pdf
Íbúð þessi er tilbúin til afhendingar og afhendist eins og hún er við skoðun eignar auk svalalokana og stæðis í bílakjallara en áætlað er að bílakjallari verði tilbúinn í byrjun árs 2026, suðurhús verði tilbúið vorið 2026 og neðri hluti norðurhúss sumarið 2026.
Húsið er klætt álklæðningu. Svalir, glerhandrið og svalalokanir eru frá Cover/Stál og suðu. Innréttingar eru frá HTH og tæki frá AEG.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og löggiltur fasteignasali,
[email protected] og gsm 8931068.