Fjólugata 3, Vestmannaeyjum Um er að ræða steypt einbýlishús og bílskúr á tveimur hæðum. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúð á hæð 124,0 fm, íbúð á neðri hæð 87,4 fm og bílskúr á neðri hæð 38,6 fm, samtals 250 fm. Eignin er byggð árið 1961 en mikið endurnýjuð á síðustu tveimur árum.
Eignin skiptist svo:
Efri hæð (124 fm), gott skipulagAnddyri með flísum á gólfi, skápur í anddyri
Stofa/borðstofa með parketi
Eldhús með flísum á gólfi, hvít ný innrétting og tæki, kvarts-steinn á borðum og niður með borði, allt eldhús var endurnýjað árið 2021.
Herbergisgangur, rúmgóður meðparketi á gólfi, fatarými í holi
Herbergi (1) með parketi
Herbergi (2) með parketi og skápum
Baðherbergi, stækkað og allt endurnýjað árið 2018, flísar í hólf og gólf, upphengt wc, walk in sturta, innrétting, handklæðaofn.
Herbergi (3) með parketi og skápum
Neðri hæð/kjallari (87,4 fm auk bílskúrs)Inngangur að norðanverðu og innangengt frá efri hæð, steyptur stigi milli hæða, nýtt teppi.
Bílskúr, rafmagn og sjálfvirkur opnari, eldri innrétting á suðurvegg. Hurð snýr í norður og keyrt niðurfyrir hús og að norðanverðu inn í bílskúr. Ofn í bílskúr og lagnir klárar fyrir vatn.
Þvottarhús með flísum á gólfi, þar er varmaskiptir.
Baðherbergi við þvottarhús sem nýtt er af íbúð á neðri hæð, all tekið í gegn árið 2019, flísar á gólfi, sturtuklefi, ný innrétting og wc.
Geymslur innaf þvottarhúsi, önnur flísalögð og hin með flotuðu gólfi, innrétting, ljósleiðari.
(sér íbúð), innangengt úr þvottarhúsi, er í útleiguStofa/eldhús nýmálað og nýtt parket, innrétting yfirfarin.
Herbergi parketi á gólfi, skápur.
Framan við húsið er
stór sólpallur með heitum potti (rafmagns) sem fylgir með eign í sölu, nýlegur steyptur veggur með lýsingu, steypt bílaplan og grasflötur. Steypt innkeyrslu að austanverðu og að stærstum hluta baklóðar (norðaustur).
Eignin var máluð að utan sumar 2024 og nýtt alocink sett á þak árið 2019. Eignin hefur verið mikið tekin í gegn að innan á síðustu árum m.a. ný gólfefni, nýjar innihurðar, nýleg baðherbergi uppi og niðri, nýleg eldhúsinnrétting og tæki, nýjar neysluvatnslagnir og hitagrind/varmaskiptir, nýtt skólp og brunnur frá húsi og út í götu, rafmagn yfirfarið, nýmálað og veggir og loft heilspartslað árið 2018, gluggar eru frá 2005.