Áshamar 34, VestmannaeyjumUm er að ræða einbýlishús á einni hæð, upphaflega byggt árið 1975 en talsvert endurnýjuð árið 2013. Eignin er af timbri klædd með vatnsvörðum við. Eignin skiptist svo:
Anddyri með flísum
Þvottahús er innaf anddyri flísar á gólfi og hluta veggja, skápar og vaskur.
Hol með flísum á gólfi, uppgangur á geymsluloft
Stofa með flísum á gólfi, hurð út á sólpall
Sólstofa, flísar á gólfi, innangengt úr stofu og útgangur út á sólpall
Eldhús, flísar á gólfi, innrétting og tæki endurnýjuð fyrir nokkrum árum
Herbergi (1) með parketi á gólfi
Herbergi (2) með parketi á gólfi
Herbergi (3) með parketi á gólfi, nýtt sem fataherbergi
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, sturtuklefi, innrétting, upphengt wc og handklæðaofn.
Stór gróin lóð, skráð lóðarstærð er 750 fm. Gott útsýni yfir Smáeyjar. Fyrir liggja samþykktar teikningar á bílskúr/viðbyggingu frá árinu 2019. Á lóð er útigeymsla/skúr sem er ekki í skráðum fermetrum eignar.