Áshamar 75, 1. hæð B (sér inngangur og stór pallur í suður).Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð/jarðhæð í fjöleignarhúsi, Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 84,2 fm, sérgeymsla 7 fm, samtals 91,2 fm auk sameignar og sólpalls í suður (c.a. 35-40fm). Eignin skiptist svo:
Anddyri með flísum, fatahengi
Hol með parketi
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, “walk in” sturta, sturtugler, tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn og lítill skápur undir vaski, upphengt wc, baðherbergi var endurnýjað árið 2020.
Herbergi (1) með parketi á gólfi, góðir skápar, útgangur út á sólpall
Herbergi (2) með parketi á gólfi, skápur
Stofa/borðstofa með parketi
Útgangur úr stofu út á afgirtan
sólpall sem er c.a. 35-40 fmHerbergi (3) við hlið eldhúss, með parketi á gólfi
Eldhús með parketi á gólfi, hvít innrétting
Sérgeymsla er í kjallara og geymslur í sameign á jarðhæð
Eignin er snyrtileg og er með sérinngang að norðanverðu.
Nýtt járn er á þaki hússins og til stendur að mála, skipta um útidyrahurð og yfirfara stigagang/stigahús og er til peningur í hússjóði fyrir því að einhverju leiti.
Eignin getur verið laus til afhendingar strax við kaupsamning.
Nánari upplýsingar gefur Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali í síma 8931068 eða á
[email protected]