Vesturvegur 5 (Baldurshagi), íbúð á annarri hæð, merkt 1 0207 Um er að ræða íbúð á annarri hæð sem er skv. fasteignaskrá 78,4 fm þar af er íbúð á annarri hæð 73,4 fm og geymsla í séreign í kjallara 5,0 fm. Til viðbótar eru góðar svalir í vestur 7,1fm og stæði í bílgeymslu.
Íbúðin skipist svo:
Hol/anddyri með flísum/parketi á gólfi, skápur
Eldhús með eikarinnréttingu, parket á gólfi
Geymsla/þvottarhús, flísar á gólfi, þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vaskur
Baðherbergi, flísar í hólf og gólf, walk in sturta, innrétting, upphengt wc
Herbergi (1) parket á gólfi, góðir skápar
Stofa/borðstofa, parket á gólfi, svalir í vestur. Eldhús/stofa/borðstofa er eitt rými.
útgangur úr stofu á
svalir í vestur Geymsla í séreign í kjallara auk sameignarrýma m.a. hjólageymslu. Snyrtileg sameign.
Íbúðinni fylgir
stæði í bílgeymslu merkt B16. Bílgeymsla er snyrtileg og gólf var lakkað árið 2022.
Baldhurshagi er fjöleignarhús í miðbæ Vestmannaeyja, húsið er klætt að utan með flísum og áli. Í húsinu er lyfta sem nær niður í kjallara þar sem eru geymslur og bílakjallari.
Eignin getur verið laus við kaupsamning