Vesturvegur 18, Vestmannaeyjum Samkvæmt fasteignaskrá er um er að ræða verslunarhúsnæði á jarðhæð í tvíbýlishúsi, húsið er skv. fasteignaskrá 238,9 fm. Húsið sem hefur gengið undir nafninu “Kúluhúsið” er skv. fasteignaskrá af timbri og klætt með dúk, burðarvirki er að hluta steypt, húsið er byggt árið 1983. Eignin skiptist svo:
Aðalinngangur að austanverðu, góð bílastæði framan við aðalinngang
Stórt rými/veitingasalur þar eru í dag borð fyrir 45 manns en gæti rúmað mun fleiri gesti, aðstaða fyrir pílukast, gott sjónvarp fyrir sportbar og stór og góður bar sem var áður á Súlnasal Hótel Sögu (“Fjólublátt ljós við barinn”)
Salerni fyrir fatlaðaTvö salerni fyrir aðra gesti
StarfsmannasalerniHerbergi/SkrifstofaÞvottaaðstaðaEldhús er fullbúið og ný loftræsting
Kælir/geymslaAðkoma að baka til (vestanverðu)
Eignin hefur verið talsvert endurnýjuð og hefur verið notuð undir rekstur sportbars/veitingastaðar og uppfyllir öll skilyrði/leyfi til slíks reksturs. Stór og góður bar með þremur vöskum og eldhúsaðstaða, nýleg salerni ofl.
Að utan hefur verið skipt um glugga og sett opnanleg fög í fjóra glugga og timbur álklætt að sunnan og austanverðu.
Eignin stendur á áberandi stað í miðbæ Vestmannaeyja og býður uppá mikla möguleika m.a. til veitingareksturs eða verslunar- eða skrifstofureksturs eða annars. Lóðarstærð er 399 fm. Góð bílastæði eru framan við eignina