Ofanleitisvegur 29, 900 Vestmannaeyjar
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
1 herb.
161 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
51.700.000
Fasteignamat
23.850.000

Oafnleitisvegur 29
Óskað er eftir tilboðum
Eignin er að mestu tilbúin að innan og langt komin að utan og í lóðarfrágangi.


Hið selda bil er nr.  010103, annað frá suðri, skráð 161,5 fm, grunnflötur er um 123 fm og milliloft um 38,5 fm.  Góð lofthæð er í húsinu, frá 5 metrum og uppí 8,4 metra.

Byggingarlýsing:

Húsið afhendist í samræmi við teikningar og skilalýsingu.  Húsið er steypt/kubbað með gluggum, útihurðum og bílskúrshurð/iðnaðarhurð.

Burðarveggir eru steyptir/kubbaðir og húsið verður frágengið með álklæðningu að utan og búið að pússa og mála hvítt að innan.
Þakið er með alocinki, með furusperru og einangrað með 200 mm ull/raksperra.  Búið er að setja hvítt báruál í lotið inni og setja upp ljós.  Þakkassi verður kláraður og borið á hann.

Húsið afhendist fullgrágengið að utan og einangrað (kubbað).  Húsinu verður skilað að innan tilbúnu og efri hæð tilbúinni undir tréverk þ.e. án milliveggja/léttra veggja en steypt milliloft er komið og er inní uppgefinni fermetratölu.  Seljandi mun klára eignaskiptayfirlýsingu fyrir kaupsamning þar sem gerð er grein fyrir eignarhlutföllum í húsi og sérnotaflötum á lóð.

vatnslagnir eru komnar inn fyrir fyrir útvegg og frárennslislagnir í grunnplötu.  Rafmagnsinntak er komið inn og búið að setja upp töflu og taka út rafmagn.

Búið er að steypa plan fyrir framan hvert bil og setja upp steypta veggi.   

Seljandi hefur greitt, skipulagsgjöld, gatnagerðargjöld og inntaksgjöld v/vatns og rafmagns.

Afhending getur orðið við kaupsamning

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.