Foldahraun 39J, VestmannaeyjumUm er að ræða tveggja herbergja endaíbúð (norðurendi) á jarðhæð í raðhúsi. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 58,8 fm, sérgeymsla 7,5 fm og sorpgeymsla 1,8 fm, heildarfermetrar eru því 68,1 fm. Eignin skiptist svo:
Forstofa/anddyri með flísum á gólfi, sér inngangur á jarðhæð.
Hol með parketi og skápum
Baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél. Baðherbergi endurnýjað árið 2014.
Svefnherbergi með parketi á gólfi
Stofa/borðstofa með parketi, útgangur í vestur á góðan timburpall (c.a. 20 fm)
Eldhús með eldri innréttingu og parketi á gólfum.
Skjólgóður/sólríkur pallur í vestur sem er framlenging á stofu.
Eignin er vel staðsett endaíbúð og stutt er í Hamarsskóla og leiksvæði við hann, Herjólfsdal, golfvöll og íþróttasvæði.
Sérgeymsla er í kjallara