Góð 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í næstneðsta stigagangi í vestari Áshamarsblokk. Íbúðin er 79,7 fm og sérgeymsla 5,7 fm, samtals 85,4 fm. Íbúðin skiptist svo:
Anddyri með flísum, fatahengi Hol/borðstofa með parketi Eldhús með parketi á gólfi og hvítri snyrtilegri innréttingu. Svefnherbergi (1) með parketi á gólfi, lítill skápur Svefnherbergi (2) með parketi á gólfi, góðir skápar Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefi,lítil innrétting, tengi fyrir þvottavél Stofa með parketi á gólfi, útgangur úr stofu á svalir í vestur, mjög gott útsýni í vestur yfir Smáeyjar, golfvöll og Herjólfsdal.
Sérgeymsla, sameiginlegt þvottarhús og góðar geymslur í kjallara. Gott malbikað bílastæði framan við blokkina. Stigagangur/sameign snyrtilegurstaða hússjóðs góð.
Mögulegt er að kaupa bílskúr í smíðum austanmegin á bílastæði neðan við blokkina.