Höfðavegur 28 er steypt einbýlishús á einni hæð 141,5 fm og bílskúr er 35,7 fm, samtals 177,2 fm. Byggingarár 1974. Eignin skiptist svo:
Anddyri með flísum á gólfi, skápur Herbergi (1)/forstofuherbergi með parketi á gólfi Geymsla/salerni, rými sem notað er sem geymsla en lagnir tilbúnar til að setja salerni Stofa/borðstofa/hol með nýlegu parketi á gólfi, útgangur á stóran pall í suður/vestur. Eldhús með víniflísum á gólfi, nýleg innrétting og tæki, tveir ofnar, innbyggður ísskápur og uppvöskunarvél sem fylgja með eign í sölu Geymsla/þvottarhús með flísum á gólfi, innrétting, vaskur, hitakútur, rafmagnstafla, Geymsla við þvottarhús og bakdyraútgangur í vestur. Sjónvarpshol með parketi á gólfi, mögulegt að gera herbergi (5), útgangur á pall (þar sem er heitur pottur sem mögulegt er að kaupa með eign), skjólsæll pallur, markísa Herbergi (2) með parketi, fataskápur Baðherbergi, flísar á gólfi, og fibo-trespo á veggjum að hluta, sturtuklefi, innréttingar. Herbergi (3), með parketi Herbergi (4), með parketi
Bílskúr er 35,7 fm og mjög snyrtilegur, vatn og rafmagn í bílskúr og sjálfvirkur opnari. Bílskúr talsvert endurnýjaður m.a. nýleg hurð, gluggar og gönguhurð, nýleg ljós og nýlega dregið rafmagn, 3ja fasa rafmagn og milliloft, , varmadæla
Góð gróin lóð (722 fm). Timburpallqar aftan við húsið á baklóð, frábært útsýni, skjólsælt í botnlanga. Innkeyrsla framan við bílskúr og við hlið húss í austur.
Um er að ræða vel skipulagða eign á einni hæð sem hefur verið talsvert endurnýjuð. Múrklæðning yfirfarin, slípuð og sett steiningarlím c.a. árið 2020.