Ásavegur 18, efri hæð og ris auk rýmis á jarðhæð og bílskúrs
Um er að ræða hæð, ris, hluti jarðhæðar og bílskúr/útihús í steyptu tvíbýlishúsi á þremur hæðum að Ásavegi 18. Húsið og bílskúrinn/útihúsið er skv. Fasteignaskrá 197,9 fm en gólfflötur í risi er ekki allur meðtalinn, heildarflötur er um 220 fm. Húsið skiptist svo.
Hæð (skv Fasteignaskrá 98,7 fm): Anddyri með flísum Hol með flísum Herbergi (1) með nýju parketi, lítil geymsla/skápur, nýr ofn Baðherbergi endurnýjað 2009, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og skápur. Herbergi (2) með parketi, nýr skápur Stofa/borðstofa/sjónvarpshol, tvískipt með parketi, rósettur í lofti. Eldhús með endurnýjaðri upprunalegri innréttingu og flísum á gólfi, nýleg tæki.
Risið (skv. Fasteignaskrá 23,5 en gólfflötur er stærri) Gengið uppí ris úr holi, steyptur stigi með kókosteppi. Herbergi/geymsla (3), lítið, með parketi á gólfi Herbergi (4), með parketi á gólfi Herbergi (5) með parketi á gólfi, inngangur í óinnréttað rými/geymsla.
Jarðhæð (hluti íbúðar skv. Fasteignaskrá 47,3 fm) Þar er sérinngangur að vestanverðu (frágangur við hurð eftir). Gott þvottarhús með flísum á gólfi, renna af efri hæð fyrir þvott, góð innrétting og vaskur Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, sturta, handklæðaofn Herbergi (6) með parketi Geymslur og góður skápur á gangi.
Bílskúr er skv. fasteignaskrá 29,3 fm. Bílskúrinn er af timbri, einangraður og klæddur alocinki. Rafmagn lagt úr húsi. Geymsluskúrar tengdir bílskúr sem ekki er í fasteignaskrá.
Steyptar stéttar og timburpallar er umhverfis húsið og við bílskúr. Lóð vel afgirt. Ágæt baklóð.
Skipt var um járn á þaki 2005, góðir plastgluggar og veluxgluggar á risi og að hluta nýlegir gluggar á hæðinni. Rafmagnstafla og varmaskiptir endurnýjað fyrir nokkru.