Samkvæmt upplýsingum úr fasteignamati er um að ræða 241,8 fm steypt/hlaðið einbýlishús á tveimur hæðum þmt. 49,1 fm bílskúr á jarðhæð. Efri hæð er hlaðin en einangruð og klædd með flísum. Húsið er byggt 1974 og skiptist svo:
Efri hæð (skv. fasteignaskrá 113 fm): Aðalinngangur að sunnanverðu. Forstofa/anddyri með flísum Stofa/borðstofa með parketi, fallagt útsýni í norður Eldhús með parketi á gólfi og nýlegri hvítri innréttingu (frá 2021), búr innaf eldhúsi Baðherbergi með flísum í hólf og golf, baðkar með sturtu og innrétting Herbergi (1) með parketi, skápur Herbergi (2) með parketi, skápur Herbergi (3) með parketi Gengið af herbergjagangi niður á jarðhæð (sem er um 80 fm auk bílskúrs) Þvottarhús, steingólf lakkað (mögulegt að opna úr þvottarhúsi inní séríbúð ca 63 fm Geymsla undir tröppum og gömul kartöflugeymsla Íbúð (séríbúð sem getur verið í útleigu skv. fasteignaskrá 63 fm) Inngangur að norðan, anddyri með flísum Stofa með parketi Eldhús með parketi, hvít innréting, búr/geymsla innaf eldhúsi Baðherbergi með flísum í hólf og golf, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, allt endurnýjað árið 2021 Herbergi (4) með parketi á gólfi Bílskúr (skv. fasteignaskrá 49,1 fm) Bílskúr er snyrtilegur, innangengur úr þvottarhúsi, lakkað steingólf, rafmagn, sjálfvirkur opnari, aðgengi að vatni úr þvottarhúsi, góð geymsla við bílskúr
Eigninni fylgir góð afgirt lóð sem er gróin að sunnanverðu og þar eru pallar/verönd og að norðanverðu bílastæði
Eignin er í góðu ástandi að utan m.a. var skipt um glugga á efri hæð og húsið einangrað og klætt með flísum árið 2006, kassi er að mestu endurnýjaður,til eru gluggar/gler fyrir neðri hæð sem fylgja með í sölu, tími er kominn á að drena með suðurhlið.