Um er að ræða sumarbústað á lóð nr. 1 Hallskoti, Rangárþingi eystra. Húsið er byggt árið 2015, timburhús, klætt álklæðningu, reist á steyptan grunn og steypta plötu. Húsið er 80,4 fm skv. fasteignaskrá auk geymslulofts yfir hluta hússins og c.a. 10 fm útigeymslu, samtals er hús og geymsla því c.a. 90 fm. Húsið skiptist svo:
Inngangur að sunnanverðu, anddyri/hol með flísum Geymsla þar sem er rafmagnstafla og hitakútur, þar er góður sturtulefi Salerni, dúkur á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, uppgangur á geymsluloft Eldhús með hvítri innréttingu, parket á gólfi , útgangur út á pall í austur Stofa með parketi, hátt til lofts Herbergi (1) með parketi Herbergi (2) með parketi Herbergi (3) með parketi, er innaf herbergi (2)
Góður pallur er kringum húsið.Góð geymsla að norvestanverðu c.a. 10 fm, sér inngangur
Eignin stendur á frábærum útsýnisstað á leigulóð sem er 3.400 fm. Gott bílaplan við húsið og afgirt gróin lóð.
Mögulegt er að kaupa allt innbú með eigninni utan persónulegra muna.
Ekki er komið endanlegt fasteignamat og brunabótamat en það yrði klárað í samráði við kaupanda.