Hið selda bil er nr. 010103, annað frá suðri, skráð 159,2 fm, grunnflötur er um 120 fm og milliloft um 40 fm. Góð lofthæð er í húsinu, frá 5 metrum og uppí 8,4 metra.
Byggingarlýsing:
Húsið afhendist í samræmi við teikningar og skilalýsingu. Húsið er steypt/kubbað með gluggum, útihurðum og bílskúrshurð/iðnaðarhurð.
Burðarveggir eru steyptir/kubbaðir og húsið verður frágengið með múrklæðningu að utan og pússað/hvítt að innan. Þakið verður með alocinki, með furusperru og óeinangrað. Þakkassi verður kláraður og borið á hann.
Húsið afhendist fullgrágengið að utan og einangrað (kubbað). Húsinu verður skilað að innan tilbúnu undir tréverk þ.e. án milliveggja/léttra veggja en steypt milliloft er komið og inní uppgefinni fermetratölu. Seljandi mun klára eignaskiptayfirlýsingu fyrir kaupsamning þar sem gerð er grein fyrir eignarhlutföllum í húsi og sérnotaflötum á lóð.
vatnslagnir verða lagðar inn fyrir fyrir útvegg og frárennslislagnir í grunnplötu. Rafmagnsinntak verður sett inní hús.
Lóð verður grófjöfnuð að vestanverðu en gott plan er vestan við húsið og búið að steypa plan framan við eignina.
Seljandi greiðir gatnagerðargjöld og inntaksgjöld v/vatns og rafmagns.
Skipulagsgjöld eru ekki innifalin í verði (verða lögð á eftir að brunabótamat er komið á eignirnar).
Ásett verð á hinni seldu eign miðað við framangreind skil er kr. 49.000.000.