Óskað er eftir tilboðum í eignina, nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 8931068 eða á netfangið hb@eyjar.is
Miðstræti 11, hæð og ris
Um er að ræða fjögurra til fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum í tveggja eininga húsi, skrifstofa stéttarfélags er á jarðhæð og íbúðin á annarri hæð og í risi. Íbúðin er skv. fasteignaskrá 108,2 fm en risið er ekki inní skráðum fermetrum eignar og má áætla það um 80 fm, heildarstærð er því um 190 fm. Húsið er byggt árið 1954 en talsvert endurnýjað, einkum að utan. Eignin skiptist svo:
Inngangur að sunnanverðu Gengið inná stigapall og tröppur niðrá jarðhæð þar sem er þvottarhús og hitakompa, hitagrind og varmaskiptir, aðskilið fyrir íbúð/jarðhæð. Gengið upp tröppur á aðra hæð.
Önnur hæð (skv. fasteignaskrá 105 fm) Hol með parketi, uppgangur í risið Stofa/borðstofa með parketi á gólfi Eldhús með dúk á gólfi, eldri innrétting Herbergi (1) með parketi og skáp Baðherbergi með dúk á gólfi, baðkar með sturtu, viður á veggjum Herbergi (2) með parketi á gólfi
Ris (ekki í fasteignaskrá en gólfflötur c.a. 80 fm) Herbergi(3), opið rými þegar komið er upp stiga í ris, teppi á gólfum Herbergi (4), teppi á gólfi Geymsla í austur frá herbergi 3, kalt óeinangrað rými, lagt fyrir wc og vatni Geymsla í vestur frá herbergi 3, kalt óeinangrað rými Möguleikar á að gera herbergi í geymslunum og baðherbergi í austurrými.
Þak var endurnýjað í kringum árið 2010, ál á þaki og nýir gluggar í kvistum. Skolp og ofnar var endurnýjað árið 2007. Til stendur að mála húsið að utan.
Góð staðsetning við miðbæ Vestmannaeyja og möguleikar til stækkunar og til byggingar m.a. bílskúrs.