Borgarleynir 10, Selfoss
74.900.000 Kr.
Sumarhús
5 herb.
168,2 m2
74.900.000
Stofur
1
Herbergi
5
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
4
Byggingaár
2006
Brunabótamat
71.850.000
Fasteignamat
38.800.000
Sjá allar myndir stórar Teikningar Senda á vin

Lýsing


Til sölu glæsilegt sumarhús/heilsárshús.  Tilboð óskast.

Borgarleynir 10, Miðengi/Miðborg, Grímsnes- og Grafningshreppi.


Um er að ræða sumarhús sem er skv. Fasteignaskrá 168,2 fm.  Húsið er á tvemur hæðum þ.e. kjallari/bílskúr/neðri hæð sem er staðsteypt og svo hæðin sem er timburhús og svo c.a. 115 fm sólpallur.  Húsið er byggt árið 2006 og er á 8.000 fm eignarlóð.  Eignin er klædd með nátturusteinum að utan (steypti hlutinn) og timburklæðning á efri hæð Eignin skiptist svo:


Neðri hæð (skv. fasteignaskrá 85 fm þ.e. bílskúr 60 fm og fjölskylduherbergi í kjallara 25 fm)
Bílskúr er rúmgóður, góð hurð og sjálfvirkur opnari
Baðherbergi með þvottaaðstöðu, sturta, innrétting og salerni, flísar á gólfi
Fjölskylduherbergi rúmgott, parket á gólfi, skápar
Geymslurými á pall fyrir framan baðherbergi

Efri hæð (skv. fasteignaskrá 83,2 fm)
Herbergi (1) með parketi á gólfi og skáp
Herbergi (2) með parketi á gólfi og skáp
Herbergi (3) með parketi á gólfi
Baðherbergi með flísum á gólfi og uppá veggjum við sturtu, útgangur út á pall/pott.
Stofa/borðstofa/stórt rými með parketi.
Útgangur úr stofu út á góðan pall þar sem er heitur pottur og gott útsýni
Eldhús með parketi á gólfi, viðarinnréttingu

Eignin er snyrtileg og skipulag er gott.  Eignin er nýbyggð árið 2006.  Eignin stendur í landi Miðengis/Miðborgar og stutt er í ýmsa þjónustu m.a. á Selfossi (15 mínútna keyrsla).  Góður pallur er umhverfis húsið með heitum potti.  Hitaveita er á svæðinu og húsið kynnt með henni.  Á lóðinni er grasflatir með snúrusturum.  Aðgangshlið (hringihlið eru inná svæðið).  Stutt í golfvelli á Öndverðarnesi, Selfossi og Kiðjabergi.

Sumarhúsið selst með þeim húsgögnum sem þar eru staðsett að utan verkfæra og persónulegra muna.

Skylduaðild er að félagi lóðareigenda í Miðborgum (árgjald um 20.000 ISK).
 




Senda fyrirspurn vegna

Borgarleynir 10

CAPTCHA code


Helgi Bragason
Lögmaður, MBA og löggiltur fasteignasal