Brimhólabraut-38
900 Vestmanneyjar
Brimhólabraut 38
Um er að ræða 148,5 fm einbýlishús ásamt 28 fm bílskúr, samtals 176,5 fm við Brimhólabraut 38 í Vestmannaeyjum.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og skáp, geymsla með dúk á gólfi og hillum. Hol/gangur með parketi á gólfi. Stofa með parketi á gólfi. Eldhús með flísum á gólfi og ágætri eldhúsinnréttingu. Þvottahús er inn af eldhúsi með dúk á gólfi, vask og hillum. Þvottahús þarfnast viðhalds. Þrjú herbergi með parketi á gólfi, skápur í einu þeirra. Baðherbergi með flísum á gólfi og sturtuklefa, baðherbergi þarfnast viðhalds. Sólskáli , inngangur úr stofu, ónýtt teppi á gólfi, útgangur á timburpall í bakgarði. Leki og rakaskemmdir eru í sólskála. Bílskúr með rafmagni og sjálfvirkum opnara. Bílskúr þarfnast mikils viðhalds. Yfirfara þarf rafmagnsofna og neysluvatnslagnir. Ekki er vitað um ástand lagna. Rafmagn þarf að yfirfara.
Húsið þarfnast viðhalds að utan. Þakjárn og þakkantur þarfnast viðhalds. Gluggar og gler þarfnast endurnýjunar. Skoða þarf burðargrind í útveggjum.
Seljandi mælir sérstaklega með að eignin sé skoðuð með fagmönnum og að lagnir séu myndaðar. Ekki er vitað um ástand heimilistækja.
{{type.name}}
{{type.distance | portalLocalityDistance}} , {{type.travelTime}}